Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands árið 1986.
Af því tilefni gáfum við okkur á tal við nokkra aðila sem hafa verið viðloðandi skólastarfið gegnum tíðina til að spyrjast fyrir um sögu og þróun námskeiðanna. Niðurstaðan eru tveir þættir sem hlýða má á hér fyrir neðan.
Fyrri þáttur
Rætt við Úlfar Bragason, fyrrum umsjónarmann sumarnámskeiðanna, og Sigríði Þorvaldsdóttur, sem kenndi í sumarskólanum um árabil.
Síðari þáttur
Rætt við fyrrum nemendurna Dariu Zhornik frá Rússlandi og Owen James Wilson frá Skotlandi og Branislav Bédi, núverandi umsjónarmann sumarnámskeiða hjá Árnastofnun.