Skip to main content

Fréttir

Greinakall fyrir næsta hefti Orðs og tungu

Mynd: Karl Vilhjálmsson

Frestur til að skila greinarhandritum í 21. hefti Orðs og tungu (2019) er til 15. ágúst 2018.

Með því að senda inn handrit lýsir væntanlegur höfundur sig samþykkan því fyrirkomulagi að greinin verði birt samtímis á prenti og í rafrænni gerð. 

Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega. Ritstjóri er Helga Hilmisdóttir.

Birtar eru fræðilegar greinar, á íslensku og ensku, sem lúta að máli og málfræði en sérstök áhersla er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði, nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.  

Upplýsingar um skil á handritum, lengd, frágang o.s.frv. er að finna á vefsíðu tímaritsins. Þar má einnig finna efnisyfirlit og útdrætti eldri árganga.