Skip to main content

Pistlar

Urthvalafjörður

Birtist upphaflega í mars 2013.

Kolgrafafjörður á Snæfellsnesi hefur talsvert verið í fréttum undanfarna mánuði vegna mikils síldardauða þar í desember 2012 og aftur í febrúar 2013. Nafnið Kolgrafafjörður er nú notað um fjörðinn allan, allt frá botni (Hlöðuvogi) og út undir Akureyjar. Að fornu var nafnið eingöngu notað um innri hluta fjarðarins, frá botni og fram undir þrengingarnar við Hjarðarbólsodda og Berserkseyrarodda, á svipuðum stað og brúin er nú. Kolgrafafjarðarnafnið er dregið af bænum Kolgröfum sem stendur við austanverðan innfjörðinn framarlega.

Að fornu hét ytri hluti þess sem nú heitir Kolgrafafjörður Urthvalafjörður. Í Eyrbyggjasögu segir: „Vestar hét maður, sonr Þórólfs blöðruskalla. Hann kom til Íslands með föður sinn afgamlan og nam land fyrir utan Urthvalafjörð og bjó á Öndverðareyri.“

Í handritinu AM 415 4to er varðveitt svokallað Fjarðatal. Það hefur að geyma lista nafna yfir alla firði á Íslandi, eða svo hefur líklega verið í öndverðu – nú er listinn sundurskorinn í handritinu og talsvert vantar upp á (sjá mynd). Þar má þó sjá að bæði Urthvalafjörður og Kolgrafafjörður hafa verið nefndir á nafn. Að vísu vantar fyrsta stafinn framan af fyrra nafninu en enginn vafi leikur á að þarna hefur staðið Urthvalafjörður, síðari heimildir styðja það.

Fjarðatal í AM 415 to.

Óvíst er hversu lengi nafnið Urthvalafjörður hefur lifað. Í kirknaskrá Páls Jónssonar biskups í Skálholti (Fornbréfasafn XII, bls. 11) frá um 1200 er Urthvalafjörður nefndur á nafn en rithátturinn er þar brenglaður –þar er ritað Urthólafjörður eða Úthvalafjörður (rithátturinn er úr síðari alda eftirritum).

Í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá byrjun 18. aldar er Urthvalafjörður ekki nefndur á nafn. Á síðari hluta 19. aldar er fjarðarins getið í sýslu- og sóknalýsingum Bókmenntafélagsins en undir öðrum nöfnum. „Kolgrafafjörður (eftir því sem nú er almennt kallað) byrjar við línu þá, sem stefnir frá Akureyjum (austnorðan fjarðarmynnið) suður til Eyrarodda eða Eyrarfjalls (Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags, bls. 255).“ Síðar í sama riti er talað um Hvalafjörð (bls. 281, 304) en Urthvalafjörður nefndur sem gamalt heiti (bls. 310). Á síðari tímum hefur gamli Urthvalafjörður líka gengið undir nafninu Fjörður (bls. 255, nmgr.). Nafnið Kolgrafafjörður er nú eins og áður segir notað um allan fjörðinn en gamla heitið er alveg horfið úr málinu.

Urthvalur er að öllum líkindum ʻhvalkýrʼ eða ʻkvenhvalurʼ en orðið kemur lítt eða ekki fyrir nema í þessu nafni. Orðið er skylt orðinu urta sem merkir ʻkæpaʼ eða ʻkvenselurʼ. Uppruni þessara orða er ekki augljós en ekki er ótrúlegt að orðin séu dregin af sögninni verpa og sú sögn þá upphaflega verið notuð um að fæða af sér bæði egg og lifandi unga.

Birt þann 20. júní 2018
Síðast breytt 24. október 2023