Heimsókn frá franska sendiráðinu
Nýr sendiherra Frakklands á Íslandi, Guillaume Bazard, og Renaud Durville, menningarfulltrúi franska sendiráðsins, heimsóttu Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á dögunum.
Nánar
Nýr sendiherra Frakklands á Íslandi, Guillaume Bazard, og Renaud Durville, menningarfulltrúi franska sendiráðsins, heimsóttu Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á dögunum.
Nánar
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, veitti Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Bragi Valdimar Skúlason hlaut verðlaunin í ár við athöfn í Fellaskóla. Við sama tækifæri fengu Tungumálatöfrar sérstaka viðurkenningu á degi íslenskrar tungu.
NánarHandrit þetta er elsta og merkasta safn eddukvæða og frægast allra íslenskra bóka. Það er skrifað á síðari hluta 13. aldar af óþekktum skrifara. Hann hefur skrifað kvæðin upp eftir enn eldri handritum sem nú eru týnd. Flest kvæðanna eru ekki varðveitt annars staðar en í þessari bók.
Nánar
Fjölmargar orðanefndir og áhugasamir einstaklingar hafa lagt mikið af mörkum til þess að efla íslenskan orða- og hugtakaforða á ýmsum fræði- og starfsgreinasviðum með því að taka saman íðorðasöfn og birt þau í Íðorðabankanum. Slíkt er gríðarlega mikilvægt til að íslenska dafni sem tungumál og hægt verði að nota hana á öllum sviðum samfélagsins.
Nánar
Þriðjudaginn 29. nóvember var haldin opnunarathöfn og kynning á Færeyska beygingargrunninum (Føroyska bendingargrunninum) í Loftsstovu Færeyskudeildar Fróðskaparsetursins í Þórshöfn í Færeyjum.
NánarÍ mars 2023 verður haldið þverfaglegt málþing á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um handrit sem talið er að hafi verið gerð í klaustrinu á Helgafelli. Fjallað verður um gerð handritanna, innihald, sögulegt samhengi, hönnun og skreytingar, sem og skrift, mál og stafsetningu ásamt öðru sem bókunum tengist.
Nánar