Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og eru þeir fyrstu í tónleikaröð sem nefnist Ex Libris. Aðgangur er ókeypis.
Sigurgeir Agnarsson sellóleikari leikur verk eftir frændurna Huga Guðmundsson og Hafliða Hallgrímsson.
Verkin sem leikin verða eru Coniunctio eftir Huga og Solitaire II, op. 58 eftir Hafliða en þau voru samin fyrir Sigurgeir og fyrstu sólóplötu hans – Nánd – sem kom út hjá Crescendo haustið 2025.
Platan hefur fengið afar lofsamlega dóma og umfjöllun og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins 2025. Nánd kom nýverið út á vínylplötu í söfnunarútgáfu í aðeins 100 númeruðum eintökum.
Nánar um flytjandann
Sigurgeir Agnarsson hefur átt farsælan og fjölbreyttan feril sem flytjandi, kennari og skipuleggjandi margvíslegra tónlistarviðburða.
Hann hefur verið fastráðinn hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil og hefur verið leiðari sellódeildar hljómsveitarinnar síðan 2017. Hann hefur margsinnis komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og leikið á ýmsum tónlistarhátíðum, bæði hér á landi og erlendis.
Á árunum 2013–2020 var hann listrænn stjórnandi einnar rótgrónustu tónlistarhátíðar Íslands, Reykholtshátíðar. Hann kenndi við LHÍ til margra ára og hefur verið kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík (nú Menntaskóli í tónlist) síðan 2003.
Sigurgeir situr í stjórn Kammermúsíkklúbbsins og er einn af stofnendum og stjórnarformaður alþjóðlegu tónlistarakademíunnar HIMA sem stofnuð var árið 2012.
sigurgeiragnarsson.com
Um plötuna Nánd
Um tónleikaröðina Ex Libris
Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.
Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.
Allir tónleikarnir sem fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.