Skip to main content

Viðburðir

Framtíðin er okkar mál. Málræktarþing Íslenskrar málnefndar

30. september
2021
kl. 15–17

Þjóðminjasafnið
Reykjavík
Ísland

Málræktarþing Íslenskrar málnefndar verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 30. september kl. 15–17. Yfirskrift málræktarþingsins er Íslenskukennsla á 21. öld.

Dagskrá:

15.00 Setning. Ármann Jakobsson, formaður Íslenskrar málnefndar.
15.05 Ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu 2021. Ásgrímur Angantýsson les.
15.15 Hanna Óladóttir: Málfræði er ekki bara málfræði. Um málfræðikennslu í skólum.
15.30 Hjalti Halldórsson: Íslenskan verður ekki kennd í tómarúmi: Um kennslu fornbókmennta í grunnskólum.
15.45 Jón Yngvi Jóhannesson: Af rykugum bókakompum og blönkum skólasöfnum. Vandi bókmenntakennara í upphafi 21. aldar.
16.00 Renata Emilsson Pesková: Tungumálasjálfsmyndir og skólareynsla fjöltyngdra nemenda.
16.15 Halldóra Sigtryggsdóttir: Markviss málörvun í leikskóla.
16.30 Afhending viðurkenningar Íslenskrar málnefndar 2021.
16.40 Kaffiveitingar.

Fundarstjóri: Eva María Jónsdóttir

 

2021-09-30T15:00:00 - 2021-09-30T17:00:00