Skip to main content

Röskun verður á þjónustu Árnastofnunar næstu mánuði. Sjá nánar.

Viðburðir

Nordkurs-námskeið í Reykjavík

05.06.2023 - 09:00 to 29.06.2023 - 17:00
Fánar Norðurlanda
Fánar Norðurlanda

Alþjóðasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands annast skipulagningu á árlegu fjögurra vikna námskeiði í íslensku fyrir um 26 norræna stúdenta sem fram fer í Reykjavík 5.–29. júní. Námskeiðið er allt að 10 ECTS og samanstendur af rúmlega 70 kennslustundum. Auk íslenskunámsins hlýða þátttakendur á fyrirlestra um íslenskt samfélag, sögu, bókmenntir og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Nordkurs.

 

Mynd: FKG
2023-06-05T09:00:00 - 2023-06-29T17:00:00
Skrá í dagbók
-