Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sækja Þingeyjarsveit heim og bjóða til sín gestum frá Háskólanum á Akureyri, Náttúruhugvísindasetri ásamt Jack Armitage frá Breiðanesi.
Fluttir verða fjölbreyttir örfyrirlestrar og boðið upp á umræður að þeim loknum.
Dagskráin fer fram í Bíósalnum í Framhaldsskólanum á Laugum sunnudaginn 1. nóvember og hefst stundvíslega kl. 17.
Dagskrá
- Trausti Dagsson og Rósa Þorsteinsdóttir: Hljóð- og hulduheimar Þingeyjarsýslu
- Hermína Gunnþórsdóttir og Kristín Margrét Jóhannsdóttir kynna Talís-verkefnið
- Jack Armitage: Rista-vél: Núritunartungumál á íslensku
- Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir: Orðabækur og gögn
- Finnur Friðriksson og Kristín Margrét Jóhannsdóttir frá Háskólanum á Akureyri:
- „Maður er náttúrulega svo stoltur af því að vera Norðlendingur“: Viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar
2026-11-01T17:00:00 - 2026-11-01T18:30:00