Skip to main content

Pistlar

Tortóla

Birtist upphaflega í mars 2016.

Örnefnið Tortóla hefur verið talsvert í umræðunni undanfarna mánuði og ár en ekki hvað síst nú í marsmánuði 2016. Og eins og stundum er tilfellið með skrýtin örnefni er Tortóla-nafnið byggt bæði á fullkomnum misskilningi og/eða talsverðum blekkingum.

Tortóla er stærsta eyjan í klasa sem gengur undir heitinu Bresku jómfrúaeyjar eða einfaldlega Jómfrúaeyjar, sem er opinbera heitið. Aðrar eyjar í klasanum eru t.d. Gilda jómfrúin (Virgin Gorda), Anegada (sem hét hugsanlega einu sinni Magra jómfrúin) og Jost van Dyk (sem nefnd er eftir hálfgildings sjóræningja).

Nafnið Tortóla hefur stundum verið eignað Kristófer Kólumbusi og talið eiga að merkja turtildúfu á spænsku. Þessi nafnskýring er þjóðsagnakennd og byggir á misskilningi. Á fræðimáli kallast slíkt „alþýðuskýring (Folk etymology) og merkir að nafnið hafi á einhverjum tímapunkti verið mistúlkað og tekið slíkum breytingum að það var nær óþekkjanlegt á eftir. Hið sanna í sögunni er að Kristófer gaf eyjunni að vísu nafn en ekki Tortóla heldur Santa Ana. Engin vitræn tengsl eru heldur við turtildúfur eða annan fiðurfénað.

Nafnið Tortóla mun upphaflega vera ættað úr hollensku máli. Landnámsmenn frá Niðurlöndum kölluðu eyjuna Ter Tholen og fóru þar að fordæmi margra landa sinna sem fluttu vestur um haf og tóku með sér örnefni úr heimahögunum (New Amsterdam, gamla nafn New York-borgar, má taka sem dæmi, eða borgarhlutann Harlem ). Þegar Bretar tóku við stjórn eyjanna (sbr. Bresku jómfrúaeyjar) fór nafnamisskilningurinn að gera vart við sig og festist að lokum í sessi.

Heitið Tholen er upphaflega á eyju undan Hollandsströndum. Það er meira en líklegt að fólk þaðan hafi numið eða tekið land á Tortóla og hafi kosið að nota kunnuglegt nafn að heiman um þessa eyju í Vestur-Indíum. Það er svo skemmtileg tilviljun að eitt þorpið á Tholen-eyju Hollandsmegin heitir saman nafni og Kólumbus valdi Tortóla, nefnilega Sint-Annaland. Það má því segja að snúningar og vafningar eigi sér stað meðal örnefna rétt eins og hversdags í mannlífinu. Í tilfelli örnefnisins Tortóla er sannarlega ekki allt sem sýnist.

Viðbót um orðsifjar: ef flett er upp á Tholen í uppflettiriti um hollensk örnefni (Nederlandse plaatsnamen — herkomst en historie, Utrecht 2006) kemur á daginn að nafnið muni dregið af fyrirbærinu tollbúð eða skattheimtuhúsi sem þar var staðsett fyrr á öldum. Eyjan dregur sem sé upphaflega nafn af fjárplógsstarfsemi. Spurning hvort eyjan gæti kannski fremur heitið Tollland,  Skattaflös eða Gjaldsker upp á íslensku.

Skjaldarmerki Tholen í Hollandi

Birt þann 20. júní 2018
Síðast breytt 24. október 2023