Search
Orðstöðulyklar
Orðstöðulykill er skrá yfir orðmyndir sem koma fyrir í tilteknum texta eða textum, ásamt upplýsingum um nánasta samhengi þeirra. Algengastir eru svonefndir KWIC-lyklar (e. Key Word In Context) þar sem hvert dæmi um lykilorðið stendur í miðri línu ásamt orðum sem standa næst á undan því og eftir í textanum.
NánarTilvitnun í efni á vef og gagnasöfn
Á síðunni eru leiðbeiningar um hvernig megi vitna í efni á vef stofnunarinnar og í gagnasöfn hennar. Dæmin eru á APA sniði en frjálst er að velja annað snið.
NánarOrðasambandsskrá
Orðasambandaskráin er unnin upp úr tölvuskráðum notkunardæmum úr Ritmálssafni Orðabókar Háskólans sem spanna íslenskar ritheimildir allt frá miðri 16. öld. Í skránni birtist fjölbreytileg mynd af notkun einstakra orða í föstum samböndum og í dæmigerðu samhengi við önnur orð.
NánarKampanöfn og örnefni tengd hersetu á Íslandi 1940–1945
Árið 1940 var upphaf eins merkasta tímabils í sögu Íslands, en 10. maí það ár var landið hernumið af Bretum. Styrjöld hafði hafist í Evrópu með innrás Þjóðverja í Pólland 1. september 1939 og stríðsyfirlýsingum Breta og Frakka gegn Þjóðverjum.
NánarJöfnubáðu-örnefni og vangaveltur um eyktamörk
Örnefni með forliðinn Jöfnubáðu- finnast á nokkrum stöðum hér á landi. Ýmiss konar fyrirbæri bera slík nöfn: holt og hólar, klettar og gil svo dæmi séu nefnd. Í Reykholtsdal eru tvö nöfn af þessu tagi: Jöfnubáðugil á Vilmundarstöðum og Jöfnubáðuklettur í landi Búrfells.
Nánar