Nordkurs-námskeið í Reykjavík
Árnastofnun
Eddu, Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands annast skipulagningu á árlegu fjögurra vikna námskeiði í íslensku fyrir um 26 norræna stúdenta sem fram fer í Reykjavík 3.–26. júní. Námskeiðið er allt að 10 ECTS og samanstendur af rúmlega 70 kennslustundum. Auk íslenskunámsins hlýða nemendurnir á fyrirlestra um íslenskt samfélag, sögu, bókmenntir og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Nordkurs.
8th International Conference on Watermarks in Digital Collections
Árnastofnun
Eddu, Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Árnastofnun og kaffihúsið Ýmir boða til sumarfagnaðar
Kaffihúsið Ýmir hefur verið starfrækt frá áramótum og hefur vertinn, Þórður Bragason, séð um að Eddubúar og nágrannar fái góðan heitan mat í hádeginu. Nú verður aðeins skipt um gír. Heitur matur verður áfram á matseðli en einnig verður hægt að kaupa létta rétti og sætindi yfir daginn, kaffi og létta drykki.
Loksins er komið að formlegri opnun kaffihússins og verður gestum og gangandi boðið upp á léttar veitingar föstudaginn 20. júní milli kl. 15–17. Til að auka á sumarstemninguna munu ljúfir Latino-gítartónar Rúnars Þórissonar gítarleikara flæða um kaffihúsið.
Tveir fyrir einn verður í boði allan daginn á sýninguna Heimur í orðum.
Verið velkomin í Eddu.
Alþjóðlegur sumarskóli í íslenskri tungu og menningu
Árnastofnun
Eddu, Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegum sumarskóla í íslenskri tungu og menningu 1.–31. júlí. Sumarskólinn verður haldinn bæði í Reykjavík og sem fjarnámskeið á netinu. Hann er ætlaður stúdentum í tungumála- og bókmenntanámi en aðrir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess kost að sækja námskeiðið.
Heimur handritanna á Náttúrubarnahátíð á Ströndum
Dagana 11.–13. júlí nk. verður Náttúrubarnahátíð á Ströndum haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi þar sem Náttúrubarnaskólinn er til húsa.
Dagskrá hátíðarinnar einkennist af alls konar fróðleik og fjöri sem tengist náttúrunni á einn eða annan hátt. Meðal þess sem boðið verður upp á laugardaginn 12. júlí er kynning á heimi handritanna en Marta Guðrún Jóhannesdóttir, safnkennari Árnastofnunar í Eddu, mun fræða gesti hátíðarinnar um hvernig efniviður úr náttúrunni var nýttur til þess að gera fyrstu íslensku bækurnar, það er að segja skinnhandritin okkar.
Gestir fá að handleika bókfell, fjaðurstafi og lyfta Plateyjarbók sem er nákvæm eftirlíking af Flateyjarbók, en sú bók er eitt stærsta miðaldahandritið sem varðveitt er í handritasafni Árnastofnunar.
Hægt verður að vafra um vefinn Ísmús og hlusta á gamlar upptökur ásamt fleiru.
Náttúrubarnahátíðin er fjölskylduhátíð og er aðgangur ókeypis.