Skip to main content

Pistlar

Ambáttar-örnefni

Birtist upphaflega í mars 2004.

Orðið ambátt er tökuorð úr keltnesku og lengra aftur latínu ambactus ('þjónn') og merkir 'ófrjáls kona, þræll'. Það hefur komist snemma inn í germönsk mál og hefur verið í íslensku frá fyrstu tíð. Allnokkur örnefni á Íslandi eru með orðliðnum ambátt:

Ambáttará fellur eftir Ambáttardal á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu (Landnámabók), en hann er einnig nefndur í Heiðarvíga sögu. Annar Ambáttardalur er í Hvammshlíð í Vindhælishreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Ambáttarsker er undan Fossá á Hjarðarnesi í Vestur- Barðastrandarsýslu og kemur við sögu Gísla Súrssonar.

Fleiri Ambáttar-örnefni eru þekkt, t.d. Ambáttarhóll á Varmalæk í Andakíl í Borgarfirði, Ambáttarleiði á Hrærekslæk í Hróarstungu og Ambáttarþúfa á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal. Sagnir eru tengdar bæði Ambáttarskeri og Ambáttarþúfu. [Til er afar forvitnileg frásögn sem tengist örnefninu Ambáttarhóll og segir af „forneskjukonunni úr Ambáttarhól“. Innsk. SMG.]

Birt þann 22. júní 2018
Síðast breytt 24. október 2023